Lifðu hvern dag, líkt og að hann væri þinn síðasti..

25.09.2007 20:30:47 / harpanl

Ég lifi..

Ég hef ákveðið að hætta að kvelja ykkur og skella inn einni "laufléttri" færslu.

Það má segja að það sé ansi margt búið að gerast, margt fremur skemmtilegt, en ætla að bíða aðeins með að vera með einhverjar yfirlýsingar hér á netinu, eflaust flestir búnir að fá fréttirnar, eða ég hugsa það.

Vildi bara láta vita að ég dreg enn andann og sömuleiðs gerir minn heittelskaði það. Á laugardaginn áttum við 4 ára afmæli, mikið er tíminn fljótur að líða.

En ég hugsa að ég komi til á næstunni með að vera virkari hérna, bæta ykkur það upp sem hafið legið í sárindum ykkar yfir því að fá ekki nýjar og sjóðandi heitar færslur frá mér reglulega.

Þangað til næst

Harpan Lukkulega  

 

Nýbyrjuð að deita, algjör unglömb :) 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:58:25 / harpanl

...

Ég er ekki frá því að "mæspeis" sé að taka meiri tíma frá mér þessa dagana en bloggið. Sé að ég hef ekkert ritað í langan tíma. En skal skélla inn einni laufléttri færslu.

Veðrið leikur við landann þessa dagana og bið ég þess að það haldist út þessa viku, vinnudagurinn verður svo miklu auðveldari og miklu skemmtilegri þegar við getum verið úti, svo eru strákarnir meðfæralegri þegar þeir geta verið svona mikið úti, enda hvað vill maður helst gera þegar maður er svona lítill en að vera úti að leika sér allan daginn. Það vildi ég í það minnsta þegar ég var yngri. Sumrin hér í den voru svo skemmtileg. Maður var úti allan daginn og allt kvöldið í annað hvort fótbolta, skotbolta eða einakrónu, eða hvað annað sem okkur datt í hug. Mér finnst hrikalegt hvað börn eru farin að vera minna úti núna en þau gerðu, það er eins og ekkert sé merkilegra en að hanga inni í tölvunni og drekka kók. Hrikalegt.

En beinar fréttir af mér eru fáar. Reyndar bættist við einn lokkur í gær, í vörina er þetta oft kallað, en lokkurinn er staðsettur hægra megin fyrir ofan efri vör. Rosalega ánægð og hef þráð þetta mjööög lengi. Sá það svo þegar ég fór til Barcelona að án gríns að þar var önnur hver stelpa með slíkan lokk.

En nú er langt liðið inn í júnímánuð, fer að nálgast hásumar bara. Árið meira en hálfnað. Hvað er það? Voru áramótin ekki bara í síðustu viku?:$ Áður en ég veit af er ég að bjóða ömmubörnunum mínum í afmæliskaffi í tilefni af sjötugsafmælinu mínu. Það er sömuleiðis, hrikalegt.

Það sem hefur gerst síðan ég bloggaði síðast var jú útskriftin mín. Dagurinn var frábær í alla staði, fyrir utan kannski það að ég var allan daginn við það að sofna og komst ekki lengra um kvöldið en að kíkja til Lindu í sirka hálftíma og svo aftur heim og að sofa. Ekkert í bæjin með litlu sætu hvítu húfuna mína. Frekar fúlt. En veislan gékk mjög vel og ég veit ekki betur en að allir hafi skemmt sér konunglega. Ölvun kvöldsins var hún Amma mín sem ég hef aldrei séð skemmta sér eins vel. Læt nokkrar myndir fljóta með..

 

Myndir má finna inn á "nýrri myndir"

En það styttist í það sem ég, Íris og Tinna höfum beðið lengi eftir. Humarhátíð á höfn er helgina 29 júní - 1 júli. Humarinn klikkar aldrei.

En annað var það ekki, færslan varð víst aðeins meiri en ég bjóst við í fyrstu.

Þangað til næst

Harpa Lilja


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 20:10:40 / harpanl

Gleði gleði

Nú er maður búinn að taka skref fram á við í lífinu. Mennaskólagöngu minni lokið. Kláraði prófin síðasta föstudag en það var enska. Mér hefur sjaldan gegnið eins illa á prófi en viti menn, ég fékk 7.25 á prófinu og hef ég bara aldrei fengið eins háa einkunn á lokaprófi í Ensku. En þetta var mín lægsta einkunn svo ég get ekki annað en verið stolt af sjálfri mér. Ég fékk 7.5 í íslensku, 8,5 í þýsku, 8,5 í sögu og 9 í félagsfræði svo aðaleinkunn mín út úr skólanum 8.2 og get ég ekki verið annað en ánægð með það :)

En ég skellti próflokadjammi og tvítugsafmælinu mínu saman í einn pakka. Hélt afmælið mitt semsagt síðasta föstudag og það var bara ljómandi fínt, mikil forföll reyndar en svona er þessi tími. Svo var það hummerlimman niður i bæ en íris og stelpurnar höfðu haldið því leyndu, enda furðaði ég mig á því að allir voru farnir úr afmælinu um tvöleytið, en það hefði verið að ganga allt afmælið að limma kæmi kl. 2. Það var rosalega gaman hjá okkur í limmunni, enda þrusu skemmtilegar stelpur. Myndirnar tala fyrir sínu 8)

 

En á mánudaginn byrjaði ég svo í nýju vinnunni. Líkar hún alveg rosalega vel, alveg það sem ég ætti að vera að gera. Á minni deild eru 4-5 ára strákalingar svo það er mikil þreyta sem maður tekur með sér heim úr vinnunni en þeir eru rosalega skemmtilegir þó krafturinn sé stundunn einum of mikill.

En nú er undirbúningur fyrir stúdentsveislu í fullum gangi. Ég fór meira að segja í neglur í gær, en er alveg svakalega brussuleg, enda brussa með eindæmum. Morgundagurinn verður án efa rosalega skemmtilegur, get ekki beðið.

Þangað til næst :)

Harpa Lilja 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 18:48:45 / harpanl

...

Aðeins eitt próf eftir og ég er að farast úr ánægju, það er svo stutt í þetta. Svo er bara beint í party gallan og djammað alla helgina, ójá.

Við vorum að festa kaup á nýjum bíl, BMW 318 árgerð 2003. Skuggalega flottur bíll og ég ekki frá því að öfund hafi gert vart við sig hjá einstaka aðilum. En mikið á maður eftir að sakna trölla. Hann er bara svo lítill og maður á svo marga vini til þess að rúnta með. Pósta einni sætri mynd af honum á næstunni.

En nýja vinnan tekur við á mánudaginn næsta. Smá fiðrildi eins og alltaf þegar maður er að taka nýja hluti fyrir hendi. Mikið verður skrýtið þegar sumarið fer að enda og vita til þess að maður sé ekki að fara í skóla. Hef alltaf farið í skóla eftir sumarið svo þetta verður án efa skrýtin tilfinning en eflaust mjög skemmtileg.

 Það stefnir í mikið djús sumar. Við munum leggja undir okkur hverja útihátíðina á fætur annarri. Spurning um meðferð eftir sumarið. Þetta veitir ekki á gott bara næstu 3 helgar. Næsta helgi er það afmælið mitt og svo afmæli hjá Nínu og Erlu. Helgin eftir það er það útskrift = hörku djamm og helgina eftir það eiga Sóley og Íris afmæli. Í júní eru svo bíladagar og humarhátíð og hver veit hvað annað.

En það er frídagur á morgun svo það verður líf í bænum í kvöld. Kannski maður kíki eitthvað út, jafnvel á rúntinn á nýja bílnum ;)

Harpan..


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 12:44:23 / harpanl

...

Félagsfræði og íslenska búin, þýska, saga og enska eftir og ég er að ÆLA þetta er svo ógeðslega leiðinlegt. Gvuð hvað það verður gott að vera laus við próflestur í allavegana eitt og hálft ár. Komin með svo miklu meira en upp í kok þetta er svo viðbjóðslega leiðinlegt. ARG.

En er að vera ógeð dugleg núna því maður er að fara á tryllt Júró djamm á Nasa með Páli Óskari á laugardaginn. Tryllt stuð og hlakkar vibba mikið til en verð að vinna mér það inn með miklum lestri þangað til.

Heyrumst

Harpa sem er að rífa sig á hol úr leiðindum


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 18:48:09 / harpanl

...

Þá er skonsan orðin tvítug en kemur þó ekki til með að nýta sér það næstu helgar þar sem lærdómstörnin er hafin fyrir alvöru. Stúdentsprófin hefjast komandi fimmtudag svo það verður lítið líf í manni á næstunni. Ég hugga mig þó í því að framhaldsskólaganga mín mun ljúka nú innan við mánuð svo það gleður mitt litla hjarta. Í gær voru kennarar kvaddir og leystir út með ýmiskonar gjöfum. Það var ánægjulegt en ég veit ekki hvort ég komi til með að sakna skólans neitt ofboðslega þó svo þessi framhaldsskólaár mín hafi verið mjög ánægjuleg. Nú taka bara aðrir hlutir við.

Barcelonaferðin var mjög skemmtileg. Ég er þó ekki æst í það að heimsækja borgina á næstunni. Hún er mjög falleg og verðráttan æðisleg en ég get bara enga vegin fýlað Spánverjana þar. Það að ferðast til stórborgar og geta ekki átt nein samskipti á ensku finnst mér ekki vera borginni til framdráttar. Í kjölfarið á því að geta ekki talað við til dæmis þjónustufólkið þar því það talar bara spænsku þá verður þjónustulund þeirra takmörkuð. Hreinlega allir þarna kunna ekki skít í ensku og þó svo maður sagði "english" þá héldu þeir bara áfram að babbla á spænsku eins og maður kæmi allt í einu til með að skilja þá. Magnað. Og svo allar sjónvarpsstöðvar talsettar, það hreinlega eyðileggur gott sjónvarpsefni. Hvað er með þessa sérvisku í þessum þjóðum. Skil ekki. En það var nóg verslað í ferðinni, mín fann sér nokkrar HM búðir til þess að tapa sér í. Hótelið var líka mjög flott. Dýrindis morgunverður alla morgna og kósý herbergi. Fullt hús fyrir því.

En hef verið að eyða deginum í að lesa heilsufélagsfræði. Alveg hrikalega skemmtilegt eitthvað. Ætla að halda því áfram þetta föstudagskvöldið.

Inn og út

Harpa Lilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 21:48:51 / harpanl

...

Vitiði til, ég ætla ekki í þetta skipti að láta líða of langt í næstu færslu, svo hér kemur ein, sjóðandi heit og beint úr ofninum.

Það er margt sem að ég gæti hugsað mér að ræða. T.d. pólitíkina og komandi kosningar. Ég var að horfa á Kastljósið áðan og um mig fór alveg hrikalegur kjánahrollur en þar áttu sér stað alveg rosaleg rifrildi ef svo má að orði komast. Þessi pólitíska umræða getur stundum gengið aðeins of langt í dónaskap. En hún er samt sem áður skemmtilegt aðhlátursefni. :lol: Ég veit þó vel í hvað mitt atkvæði mun fara og það vita held ég flestir sem að mig þekkja.

Svo er það Eurovision sem verður víst sama dag og kosningarnar. Skemmtilegt að hafa þetta tvennt í miðjum stúdentsprófum. En ég græt mig ekki í svefn yfir því. Ég er eiginlega bara komin með upp í kok af þessu Eurovisioni, tíminn sem fólk er að eyða í svona líka drullu leiðinleg lög. Það er kannski 1-2 lög í hverri keppni sem eitthvað er varið í. Og hvað er með Ísland og þeirra sigurvon. Hún dregur okkur alltaf lengra og lengra niður í svaðið, sættið ykkur við það kæra þjóð að við munum búa í þessari forkeppni for life.

Í dag föstudagurinn 13 og hrakfallabálkurinn Harpa hefur enn ekkert slasað sig eða gerst óheppin (SJÖ NÍU ÞRETTÁN). Nema kannski þessi ógeðslega vondi hlaupastyngur sem ég fékk í ræktinni í dag. Shitt fokkin shitt. Hafandi sagt það er voðalega gaman að fá öll þessi hrós sem að maður hefur verið að fá fyrir "góða velgengni" ef svo má segja í ræktinni sem er farin að bera einhvern augljósan árangur. En bíðið bara, ég er ekki hálfnuð.

Svo nú er ekki eftir neinu að bíða en að bíða eftir útlandsferðinni minni margumræddu og tvítugsafmælinu mínu langþráða. Ég elska apríl...

Þangað til næst

Harpa Lilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 14:35:29 / harpanl

....

Jæja, þetta páskafrí hefur svo gott sem bara endað á sorphaugunum. Maður er ekki búinn að standa sig í náminu og éta eins og svín. Stundum þoli ég ekki jól og páska einmitt af þeirri ástæðu. En skólinn byrjar aftur á morgun. Þá eru aðeins 9 skóladagar eftir.
En eftir 8 daga er Barcelona og eftir 10 daga dimmition. :cry: Mikið ætla ég að hafa gaman úti til þess að bæta upp fyrir þann missi. Svo erum við að lenda á sunnudagsnóttina þegar við komum heim svo að það verður ekkert afmæliskaffi um kvöldið eins og ég var búin að ætla mér. Það verður bara að kveldi 23. apríl í staðin. Frekar einkennilegur flugtími, förum í loftið héðan kl. 19 á miðvikudeginum, erum að lenda eitthvað eftir miðnætti í Barcelona, svo erum við að fara í loftið á miðnætti á sunnudeginum og lendum klukkan 3. Svo þarf Davíð blessaður bara að gjöra svo vel að mæta í vinnuna og ég að dratta mér í skólann eftir mjög skamman svefn. Það verður bara að hafa það. Þá get ég gert eitthvað voðalega skemmtilegt á afmælisdaginn í Barcelona. :haha:

En þarf að drífa mig til Lindu minnar að vinna einhvern bjánalegan fyrirlestur.

Verið þið sæl

Harpa Lilja


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 01:38:46 / harpanl

Minningar..

Tíminn líður og hlutir þróast og breytast. Það sem hins vegar breytist aldrei er hversu vel við Íris mín getum skemmt okkur yfir einni myndavél og hefur þessi tiltekna skemmtun fylgt okkur í gegnum árin. Við virðumst þó, sem betur fer breytast á þessum árum, enda þroskumst við (kannski þó ekki upp úr gelgjunni). Gaman að skoða gamlar myndir og svo nýjar, hér koma nokkur "sjón"dæmi;

    

 

Gamlir tímar, góðir tímar, en...

 

Nýir tímar verða enn betri...

Núna fer að líða að sumri og verður þetta sumar tekið með TROMPI. Get harla beðið ;)

Bestu kveðjur

Harpa Lilja


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 19:12:27 / harpanl

...

Langþrátt páskafrí gengið í garð og vinnuvaktir mínar fara fækkandi. Aðeins 2 vaktir eftir. Þessa dagana er mikil þreyta í manni sem boðar ekki gott vegna þess að ekki nægir að sofa á bókunum, maður þarf að lesa þær.
Svo er það Barcelona ferðin aðeins eftir 18 daga. Búið er að færa dimmition daginn til 20 sem þýðir að ég mun ekki dimmitera, frekar fúlt en geri bara eitthvað ógó skemmtilegt í Barcelona í staðin, kannski eins og djamma með Eið Smára eða svo. En ég mun koma heim svo á afmælisdaginn minn, en þetta verður ekkert eins og hver annar afmælisdagur vegna þess að ég verð tvítug eins og ég hef nú nokkrum sinnum komið inn á. Vona að við verðum ekki að lenda of seint svo ég geti boðið nokkrum útvöldum í kökur, svona eins og í denn dager. En smá svona myndir frá hótelinu;

 

Annað var það ekki, ekki vera svona löt í "athugasemda" dótinu.

Harpan.. 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 15:31:14 / harpanl

...

     Það er skrýtin tilfinning að lýta yfir skóladagbókina og sjá hversu ískyggilega stuttur tími er til stefnu. Aðeins á ég 16 kennsludaga eftir af framhaldsskólagöngu minni sem er undarlegur biti að kyngja. En hann er þrátt fyrir það gleðilegur vegna þess að ef að ég lýt yfir farin veg þá hefur framhaldskólaganga mín verið hin skemmtilegasta, en þó verður gott að geta sagt skilið við hana.
       bíða betri tímar. Í fyrsta skipti í mínu lífi mun ég, fyrir mitt leyti, takast á við alvöru lífsins og fara af fullum krafti inn á vinnumarkaðinn. Sumarvinnur og helgarstörf er ekki the real deal og nú fyrst fær maður að upplifa það hvernig er að hrærast og snúast á íslenskum vinnumarkaði fyrir einhverri alvöru. Þetta þýðir semsagt það ef að ég hef ekki sagt það áður að ég er að fara að taka mér frí frá námi næsta vetur og er notabene komin með vinnu fyrir sumarið og næsta vetur, vinnu sem að ég hef lengi haft mikinn áhuga á að takast á við. Ég er semsagt komin með vinnu á leikskóla hér í grendinni og er maður farinn að vera mjög spenntur yfir því. Þessi tími á vinnumarkaðinum verður svo líka tími sparnaðar en við skötuhjú stefnum á íbúðarkaup árið 2008 og eins og markaðurinn er í dag þá er best að eiga góða summa af innborgun í íbúðina. Þar sem ég stefni svo á háskólanám haustið 2008 þá verður gott að vera búinn að koma sér fyrir í lífinu og byrjaður að fjárfesta fyrir alvöru og vera ekki að byrja á því þegar maður er að klára að mennta sig, langt gengin á þrítugsaldurinn.
     Annað var ekki á dagskrá hjá mér. Nú tekur við próflestur, sögupróf á morgun. Ég er einfaldlega á haus í námi núna vegna þess að kennarar eru að gera sér grein fyrir því núna hvað mikið á eftir að gera, en lítill tími svo að allir hlaða á mann efni á sama tíma. Er þetta ekki of týpískt?

     Gröm í geði kveð ég um sinn

Harpa Lilja


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 08:40:24 / harpanl

X-factor blogg..

Jæja, ég ætla leyfa mér að koma af stað smá áróðri með X-factor keppnina. Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum sem lesa bloggið að góðvinkona mín, Íris Hólm er keppandi í þættinum. Hún og Guðný Pála skipa dúettin GÍS. Ástæðan fyrir þessu bloggi er einfaldlega sú að svona áróður hefur verið að ganga með tölvupóstum og öðru eins með aðra keppendur og þar sem enginn annar flytjandi þarf eins mikið á því að halda og GÍS þá ætla ég mér aðeins að blogga um það.

Þannig er málið að stelpurnar hafa í þrjú skipti verið í fallhættu í þættinum. Málið er semsagt það að þjóðin er einhverja hluta vegna ekki að kjósa stelpurnar. Mér finnst ekkert hallærislegra með svona kosningar en þegar sterkir keppendur eru að detta út og í fallhættu á meðan annað fólk hengur ennþá inni, sem á þar ekkert erindi, og hefur ekki einu sinni þurft að vera á botninum.

GÍS stelpurnar eru einfaldlega þrusu góðar saman, mjög ólíkar söngkonur sem gerir þetta einmitt svo skemmtilegt. Þær hafa lítið sem ekkert klikkað og verið frábærar alla þættina. Ég er kannski ekkert hlutlaus en get sagt með vissu að ég væri að fýla þær í botn þó svo ég myndi ekkert til þeirra þekkja.

Það sem ég fer fram á er einfaldlega það að gefa GÍS stelpunum eins og allavega eitt atkvæði annað kvöld. Ef að þú hefur aldrei horft á þáttinn hvet ég þig til þess að gera það og sjá það sjálf hvað þær eru flottar. Hlýtur að vera þar sem óskir um gigg standa ekki á sér. Stelpurnar koma til með að taka lagið ,,Lady Marmelade" annað kvöld og er númerið þeirra 900-9005. Enn og aftur, ekki vera uncool og sleppa því að kjósa, gefðu stelpunum þitt atkvæði, því þú og ég vitum það bæði að þær eru í það minnsta í topp fjórum atriðinum. Þegar dómararnir eru búnir að hleypa þeim þrisvar sinnum áfram úr botninum hlýtur það að segja eitthvað um stelpurnar. Veit ekki alveg með þessa asnalegu þjóð. Þess vegna dreg ég tilgang símakosninga í vafa.

Virðingarfyllst

Harpa Lilja

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 18:17:49 / harpanl

...

Það er kominn nýr mánuður, marsmánuður. Það þýðir einungis eitt, að í næsta mánuði verð ég tvítug, dimmitera með frábæru fólki í ýkt flippuðum búning og fer til Barcelona með mínum heittelskaða.

En það þýðir líka eitt, að í næsta mánuði hefst prófalestur fyrir alvöru, og ekkert einhver venjulegur prófalestur, heldur STÚDENTSprófalestur. Já, kellingin er alveg að klára þetta, hvort sem þið viljið trúa því eður ei.

Næstkomandi föstudag er svo reunion með 87' árganginum mínum úr Gaggó Mos. Mörg andlit sem að maður hefur ekki séð lengi, en önnur andlit sem maður hefur reyndar séð of oft hreinlega. Ég og Linda látum okkur ekki vanta, enda yrði þetta dautt án okkar, klárlega.

Annað er ekki í deiglunni. Nema maður kannski komi aðeins inn á X-factor af gömlum vana. Stelpurnar stóðu sig þrusu vel í síðasta þætti og komnar í seinni hlutann. Flutningurinn var hrikalega góður og fólk sem er að segja að Heiða hafi reddað þessu fyrir þær á bara að stinga höfði sínu upp í sinn óæðri enda, vegna þess að hún kom ekki nálægt þessum flutning. Enda þurfa stelpurnar, eins hrikalega góðar og þær eru, enga aðstoð. Ég vona bara innilega að sumir aðilar sem eru inni í þættinum fari að kveðja, hrikalegt hvað góðir hafa þurft að pakka niður á meðan aðrir sitja sem fastast í þættinum. Skandall að hafa svona símakosningu.

En mútta tútta bíður þess að ég byrji að elda. Best að hlýða frúnni. Breytingarskeiðið getur farið alveg rosalega illa með fólk. Kannast eitthver við þennan vanda?

Auf Wiedersehen

Harpan 

P.s. það drepur engan að skilja eftir sig kveðju :( 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 22:04:33 / harpanl

...

Arfaslakur bloggari er maður..

En svosum lítið að frétta, er að jafna mig eftir átök helgarinnar (bleeendafyllerí) og er maður allur að koma til, svaf mest allan skóladaginn og rotaðist um leið og heim var komið.

Árshátið MS var hin fínasta en ég og Linda stungum snemma af ballinu, dauðþreyttar alveg. Ég náði þeim áfanga að vera Félagslegt taumhald 4-D , hversu skemmtilegt?

Annars er djamm næstu helgi, engin spurning og ég er ekki að meika að bíða. Komin með nóg af því að gera ekki neitt um helgar, svo er ég að íhuga að fara í litun og vera mega fönkí.

Annars er ég ekki að skilja X-factor keppnina. Stelpurnar hafa ekki átt skilið að vera í tveimur neðstu sætunum, er fólk ekki að kjósa eða bara svona rosalega tómt eða? Vona að fólk taki sig saman í andlitinu og kjósi þær áfram næsta föstudag takk fyrir takk.

Annars bara, ef einhver vill ólmur hitta á mig, þá bara að vera í sambandi, get ekki sagt að síminn sé óstöðvandi huh

Auf Viedersehen

Harpa Lilja 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 23:48:46 / harpanl

Biturð í garð íslensk réttarkerfis

Ég get ekki orða bundist um þann hrylling sem hefur átt sér stað í lífi margra barna á Íslandi. Raunir drengjanna í Breiðuvík eru kvalafullar og sitja á sál þeirra og yfirskyggja margt gott sem þeir hafa upplifað í lífinu. Þeir hafa verið rændir sjálfsvirðingunni, tapað ærunni og finna sumir hverjir ekki munin á ást og hatri. Þetta er dæmi um það þegar umhverfi mótar einstaklinginn. Hvað annað en þetta niðurbrjótandi umhverfi hefur stýrt því hvað varð úr þessum drengjum síðar á ævinni. Þeir hafa sumir ekki þolað álagið og endurminninguna að þeir hafa tekið sitt eigið líf. Að hugsa sér að svona hafi farið fyrir mönnum sem sendir eru í betrunarvist af tilsikipun barnaverndarnefndar. Að slíkir hlutir eigi sér stað á föðurlandi mínu stórskammast ég mín fyrir. Ég vona að þessir menn fái uppreisn æru sinnar og geti nýtt sér þá hjálp sem ég vona að þeir fái, þó allt of seint sé, og geri gott úr því sem eftir er af lífinu.

Ég vona fátt heitara en að íslensk réttarkerfi verði tekið í naflaskoðun með tilliti til þess að auka á  refsingar kynferðisbrota. Við höfum sönnur fyrir því að menn eru að brjóta af sér, aftur og aftur, eftir afplánun og í afplánun sem hlýtur að fá okkur til þess að hugsa hver tilgangurinn með refsivistinni er ef að maðurinn er farin að brjóta aftur af sér. Ástæðan, hann kemst upp með það.

Það þarf að útrýma fyrnigafresti yfir kynferðisbrotum og lengja refsivistinna svo um munar. Dómur yfir manni var mildaður vegan þess að ekki voru fordæmi í kerfinu fyrir þessum tiltekna dómi. Einhverstaðar verða fordæmin að byrja ekki satt?
Það eru mannréttindabrot að maður sé dæmdur í of langa refsivist. Hvað um mannréttindi þeirrar manneskju sem brotið var á? Hún kemur líklega aldrei til með að lagast á sál. Hvernig væri að fara að einbeita sér að fórnalambinu og refsa brotamönnum eins og þeir eiga skilið.

Gott dæmi um hallærislegt réttarkerfi á Íslandi er að maður sem brýtur kynferðislega á þremur fimm ára stelpum fær tvö ár. Í Bretlandi voru tveir menn dæmdir í átta til ellefu ára fangelsi fyrir að plana að nema á brott 11 og 13 ára systur að mig minnir og nauðga þeim. Hvar er réttlæti íslenskra fórnalamba? Hysjið upp um ykkur buxurnar ríkisstjórn og farið að vinna að nýjum hegningarlögum sem eru löngu úr sér gengnar.

Annars er  X-factor annað  kvöld.  Þið eruð skildug til þess að hringja í símanúmerið 900-9008 þegar opið hefur verið fyrir kosningar. Yfir og út

Harpa Lilja Júníusdóttir 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Harpa Lilja ?